Loading... Please wait...

Fá afsláttartilboð


AUKIN ÁNÆGJA

  • Image 1
Verð:
kr.2,500
Stk:
Bookmark and Share


Vörulýsing

Lærðu að byggja upp jákvæða hugsun og lífssýn og lifa hamingjuríku lífi.

Aukin ánægja byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að nýta mátt ímyndunaraflsins og virkja óbeislaða orku hugans til þess að njóta lífsins betur. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð.

Þessi diskur er tilvalinn fyrir fólk sem vill njóta tilverunnar og létta lundina, sérstaklega hentugt fyrir fólk sem glímir við kvíða, áhyggjur og þunglyndi.

  • Útgefandi: Hugbrot
  • Þula: Signý Hafsteinsdóttir
  • Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
  • Lengd: 30 mín

Mbl. 31 maí 2005...
Nýlega prófaði ég svonefnda "sjálfsdáleiðslu" til að ná mér út úr leiðinda ávana sem ég hef tamið mér og mig langaði til að losna við. Sjálfsdáleiðslan fólst í því að hlusta á geisladisk sem hefst á rólegri tónlist og slökun, sem síðan er fylgt eftir með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum sem ætlað er að hjálpa manni að breyta um hugarfar. Það er mér mikil ánægja að segja frá því að þessi aðferð virðist ætla að bera árangur. A.m.k. hefur hugarfar mitt breyst gríðarlega við aðeins nokkrar hlustanir.
--Svavar Knútur Kristinsson, blaðamaður


Finndu svipaðar vörur eftir vöruflokki


Write your own product review

Umsagnir

Þessi vara hefur ekki fengið neinar umsagnir ennþá. Vertu fyrst/ur til að gefa umsögn!


Notendur sem skoðuðu þessa vöru höfðu líka áhuga á

Nýlega skoðað...