Loading... Please wait...

Fá afsláttartilboð


BETRI SVEFN

  • Image 1
Verð:
kr.2,500
Stk:
Bookmark and Share


Vörulýsing

Kemur þér fljótt og örugglega í djúpa slökun, og þaðan beint í draumalandið.

Betri svefn byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að virkja mátt ímyndunaraflsins og óbeislaða orku hugans til þess að ná djúpum svefni fljótt og auðveldlega. Þegar diskurinn hefur leitt þig inn í dýpstu svið hugans tekur draumavitundin við og þú sefur vært alla nóttina og vaknar endurnærður og úthvíldur.

Þessi diskur er tilvalinn fyrir fólk sem á erfitt með svefn eða er undir miklu álagi. 

  • Útgefandi: Hugbrot
  • Þula: Signý Hafsteinsdóttir
  • Tónlist: Aðalsteinn Guðmundsson
  • Lengd: 30 mín

Er farin að sofa miklu betur...
Ég hef verið að hlusta á diskinn betri svefn núna á hverju kvöldi í nánast tvo mánuði og er farin að sofa miklu betur. Ég hef alltaf átt frekar erfitt með svefn, er lengi að sofna og vakna oft upp á nóttunni. en eftir að hafa hlustað á þennan disk hefur þetta gengið mun betur, og það sem meira er þá er ég ekki eins þreytt á daginn.... sem þýðir væntalega að ég er að ná dýpri svefni yfir nóttina.
Ég mæli með þessum disk fyrir alla þá sem þufra á betri svefni að halda :)
--Birna

Sef eins og steinn á hverri nóttu...
Það var mikið álag í vinnunni og ég var farinn að sofa illa á næturnar þegar konan mín keypti handa mér diskinn Betri svefn. Ég hafði enga trú á þessu en við hlustuðum samt á diskinn á kvöldinn og það liðu ekki margir dagar þar til ég var farinn að sofa betur. Nú sef ég eins og steinn á hverri nóttu.
--Guðleifur Svanbergsson 

Sef mun dýpri svefni...
Ég hef átt við svefnerfiðleika að stríða frá því ég var barn og diskurinn Betri svefn hefur haft þau áhrif að ég sef mun dýpri svefni og mér gengur betur að sofna og sef stundum alla nóttina.
--María Sigþórsdóttir.

Svefninn orðinn gjörbreyttur...
Ég hef átt í erfiðleikum með að ná góðum slakandi djúpsvefni þannig að ég hef oft vaknað að morgni jafn þreyttur og þegar ég fór að sofa. Eftir að hafa hlustað á diskinn í um 3 vikur á hverju kvöldi er svefninn orðinn gjörbreyttur og ég næ þeirri hvíld sem ég þarf til að geta sinnt erilsömu og streituvaldandi starfi.
--Ólafur Ólafsson, skólastjóri. 

Sofum svakalega vel...
Við sofum svakalega vel við svefndiskinn, náum varla að vaka í nokkrar sekúndur:)
--Ester Björg  

Kom lagi á svefninn...
Ég er mjög ánægð með diskinn Betri svefn og notaði hann mikið meðan ég var að koma lagi á svefninn, slakaði vel á og sveif inn í svefninn, notaði hann reyndar líka stundum vegna kvíðans og það virkaði vel.
--Helga Margrét 

Þetta var hreint ótrúlegt...
Það var um miðjan nóvember 2005 að ég var stödd í Maður Lifandi, að kaupa mér einhver vítamín til að byggja mig upp fyrir desember, að diskurinn "Betri svefn" hreinlega datt úr hillunni í hendurnar á mér eins og einhver hafi verið að leiðbeina mér.  Ég er í verslunarrekstri og kvíði alltaf fyrir löngum vinnutíma í desember og andvökunóttum þegar ég er undir álagi.

Ég byrjaði strax að hlusta og viti menn þetta var hreint ótrúlegt svaf eins og steinn allar nætur í des. Hef reyndar ekki enn náð að hlusta diskinn á enda, er alltaf sofnuð löngu áður en hann klárast. Ég segi enn og aftur þetta var og er ótrúlegt, ég hef stundum þurft að leita til læknis eftir svefntöflum en nú þarf ég þess ekki lengur, hlusta bara á diskinn og er í fínu formi. Mæli eindregið með þessum diskum er ekki í vafa að þeir virka.

--Unnur Ósk

  

Finndu svipaðar vörur eftir vöruflokki


Write your own product review

Umsagnir

Þessi vara hefur ekki fengið neinar umsagnir ennþá. Vertu fyrst/ur til að gefa umsögn!


Notendur sem skoðuðu þessa vöru höfðu líka áhuga á

Tengdar vörur

Nýlega skoðað...