Loading... Please wait...Árangursrík aðferð til þess að losa um spennu í huga og líkama.
CD diskurinn Kyrrð byrjar á þægilegri klassískri Baroque tónlist sem hefur sjálfkrafa róandi og slakandi áhrif. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt djúpslökunarferli sem kemur þér fljótt og auðveldlega í djúpa slökun. Á disknum er lögð áhersla á rétta öndun til að samhæfa huga og líkama ásamt rólegu undirspili tónlistarinnar. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð. Bestur árangur næst með því að hlusta daglega á diskinn.
Diskurinn hefur fengið mikið lof fyrir góða og róandi rödd lesandans og sérstök slakandi áhrif tónlistarinnar. Fólk hefur ekki einungis notað hann til að slaka á heldur hefur diskurinn verið notaður til þess að svæfa börn, bæta námsgetu, minnka prófskrekk, bæta sjálfsímyndina, minnka sársauka í hríðum til að auðvelda fæðingar o.fl. Auk þess hefur hann gefið góðan árangur við svefnleysi, þreytu, streitu og vöðvabólgu.
Vinnur gegn: Streitu, taugaspennu, stressi, ofvirkni, þráhyggju, kvíða, áhyggjum, neikvæðu hugarfari, prófskrekk og álagi.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir fólk sem vill auka hugarró, einbeitingu og almenna vellíðan.