Loading... Please wait...Losaðu þig við reykingarfíknina á auðveldan og árangursríkan hátt.
Reyklaust líf byrjar á þægilegri tónlist með djúpslökun til þess að róa huga og líkama. Diskurinn leiðir þig síðan hægt og rólega í gegnum sérstakt ofurnámsferli þar sem þú lærir að nýta mátt ímyndunaraflsins og virkja óbeislaða orku hugans til þess að losa þig við reykingafíknina á auðveldan og árangursríkan hátt. Að lokum ert þú leidd hægt og rólega upp úr þessum djúpu sviðum hugans inn í dagvitundina, úthvíld og endurnærð.
Þessi diskur er tilvalinn fyrir fólk sem vill hætta að reykja í eitt skipti fyrir öll án þess að fitna eða líða fráhvarfseinkenni.
Búin að vera reyklaus í 2 mánuði...
Ég hef reykt í 8 ár og aldrei haft löngun til að hætta að reykja en síðan kom sú staða upp að heilsunar vegna varð ég að hætta. Ég keypti mér Reyklaust líf diskinn og er búin að vera reyklaus í 2 mánuði!
--María